26.5.2009 | 12:47
Ómar Ragnarsson
Ómar "predikaði" í Mosfellskirkju sunnudag einn í sumar (2009). Honum var ákaflega vel tekið og fékk afbragðs áheyrn. Heimreið var til kirkjunnar og voru fjölda mörg hross geymd í kirkjuhaganum á með á messu stóð. Ræða Ómars fjallaði m.a. um hestamennskuna, hann skýrði frá þjóðhöfðingjum, sem sýndu veldi sitt ríðandi á gæðingum um götur borganna eða á baklínum vígvallanna, sumir drottnunargjarnir og valdamiklir, en á hinn bóginn leiddi hann líka í ljós auðmýkt og nærgætni hestamanna við hross sín, en helsta tákn auðmýktarinnar var innreið Jesú Krists í Jerúsalem, er hann reið inn í borgina á ösnu þeirri, sem hann hafði sjálfur valið í þessu skini og komið hugboði þar um til eiganda hennar. Veðrið var fagurt og kirkjugestir allir í ágætu skapi. Góður dagur og Ómari til sóma, enda lét hann brandarana fjúka svona inn á milli. Smyrill
Um bloggið
Árni Kr Þorsteinsson
Færsluflokkar
Síður
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.